Lögreglu barst tilkynning skömmu fyrir klukkan níu í gærkvöld. Hafði karlmaður berað sig fyrir framan börn en ekki kemur fram í hvaða hverfi atvikið átti sér stað. Maðurinn var handtekinn og gisti í fangaklefa vegna málsins.
Um svipað leyti var karlmanni vísað út úr húsnæði þar sem hann átti ekkert erindi og var óvelkominn. Maðurinn var ölvaður og í annarlegu ástandi.
Klukkan hálf ellefu í gærkvöld var tilkynnt um líkamsárás. Þolandi hafði hlotið minniháttar meiðsli og veit löregla hver gerandi er.
Þrír ökumenn voru stöðvaðir í nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna. Voru þeir látnir lausir að lokinni sýnatöku.
Kemur fram í dagbók lögreglu að nóttin hafi að öðru leyti verið tiltölulega róleg.