Maður var handtekinn er hann var að reyna sparka upp hurðinni á Stjórnarráðinu. óljóst er hver ástæða tryllingsins var. Hann veitti mótþróa við handtöku og var vistaður í fangaklefa. Annar gekk berserksgang í húsnæði hjálparstofnunnar. Hann var síðar handtekinn og fluttur á lögreglustöð og læstur inni í fangaklefa uns hægt verður að ræða við hann.
Sofandi menn voru óvelkomnir í stigagangi fjölbýlishúss á Seltjarnarnesi. Lögreglan var kölluð til og þeim vísað á brott.
Íbúi í Hafnarfirði var var við menn að reyna að stela gasgrilli og kallaði til lögregæluna. Skúrkarnir fundust ekki þrátt fyrir leit.
Lögreglu var tilkynnt um slagsmál í Breiðholti. Ekkert var að sjá þegar lögreglu bar að.
Fimm ökumenn voru stöðvaðir, grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.