Formaður undirbúningsnefndar kjörbréfanefndar Alþingis, Sjálfstæðismaðurinn og þingmaðurinn Birgir Ármannsson, segir gögn sem blaðamaðurinn Karl Th. Birgisson birti á vefsíðu sinni Herðubreið, vera falsfrétt og einfaldlega hugarburð áðurnefnds Karls.
Herðubreið segir að þeim hafi borist í hendur drög að áliti Birgis um kosningaklúðrið í Norðvesturkjördæmi.
Birgir segir að gögnin sem Herðubreið birti séu heimasamin; ekkert sé til í þeim:
„Þetta er bara það sem kallað er á fínu máli falsfréttir, ég ætlaði svo sem ekkert að æsa mig yfir því,“ segir Birgir.„
Að sögn Birgis er nefndin enn að ræða saman og engin niðurstaða enn komið fram.
„Karl er bara að skemmta sér með þessu. Ekki byggt á neinu,“ segir Birgir.
Karl segir textann hafa birst skyndilega og segist hann ekki hafa haft möguleika til að meta áreiðanleika lekans:
„Nei og ég veit ekki meir. Textinn birtist skyndilega á skjánum hjá mér. En mér þóttu bæði efni og stíll býsna trúverðug,“ segir hann.
Karl vill ekki segja hvernig hann fékk skjalið í hendur:
„Eins og þegar önnur textaskjöl opnast. – Þarna kemur fram að þetta sé mjög stytt útgáfa.“