Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir, eigendur World Class, keyptu nýverið 180 fermetra glæsilega lúxus penthouse íbúð í Skuggahverfi. Þurftu þau að punga út um 150 milljónum króna. Samkvæmt heimildum Mannlífs býr dóttir þeirra hjóna, áhrifavaldurinn og markaðsstjóri World Class, Birgitta Líf í íbúðinni. Birgitta mun hafa fengið íbúðina til búsetu. Hún þarf líka einhver staðar höfði sínu að halla eftir að hún seldi 105 fermetra lúxusíbúð í Skuggahverfinu á síðasta ári. Kaupverð þeirrar íbúðar var 63 milljónir og greiddi Birgitta þá upphæð út í hönd og var hún ein eigandi íbúðarinnar. Hún seldi þá íbúð síðan á 67 milljóni króna.
Birgitta Líf byrjaði strax ung að láta að sér kveða í viðskiptalífinu. Hún er lögfræðimenntuð og starfaði sem framkvæmdastjóri fegurðarsamkeppninnar Ungfrú Ísland. Þá sá hún um markaðssetningu á samfélagsmiðlum fyrir fjölskyldufyrirtækið World Class. Í úttekt DV sagði að Birgitta Líf væri afar vinsæl á samfélagsmiðlunum Instagram og Snapchat þar sem hún fjallar um hreyfingu og heilsu. Þá sagði einnig í annarri umfjöllun DV að Birgitta sé þekkt fyrir smekklegheit og hún gangi yfirleitt með handtöskur frá tískuhúsum á borð við Chanel, Balenciaga og Yves Saint Laurent. Slíkar töskur kosta á bilinu 200 þúsund upp í 900 þúsund krónur.
Í dag er Birgitta skráð til heimilis í hinni nýju lúxus penthouse íbúð að Vatnsstíg 14. Íbúðin er stórglæsileg og útsýnið út á Faxaflóa ekkert slor. Í lýsingu á eigninni kemur fram að Birgitta Líf hefur alla hæðina út af fyrir sig. Þá gengur lyfta beint upp í þakíbúðina.
Þar eru einnig glæsilegar 72 fermetra þaksvalir og er útsýnið einstakt. Í lýsingu segir:
„Mjög mikil lofthæð í borðstofu. Eignin er einstaklega björt með miklum og nánast gólfsíðum gluggum þannig að frábært útsýnið og samspilið við þakgarðinn myndar skemmtilega heild.“
Ef við myndum nú gera okkur ferð í lúxusinn að Vatnsstíg 14 myndum við taka lyftu upp í íbúðina. Um leið og við myndum stíga út úr lyftunni þá væri björt bókastofa á hægri hönd. Þaðan væri síðan hægt að ganga út á svalir og ef það væri sá tími dags, mætti sjá sólina setjast í flóann. Þá er útsýnið yfir miðborgina fagurt. Í lýsingu segir:
„Næst tekur við stofan sem er í norðvesturhorni þakíbúðarinnar með gólfsíðum gluggum og tilheyrandi útsýni. Þriðja stofan er borðstofa með gríðarlegri lofthæð og einstaklega stóru glugga frá gólfi og alla leið upp í loft.
Veglegri borðstofu er varla hægt að hugsa sér.
Eldhúsið er samliggjandi og samkvæmt teikningu er eldunareyja. Í eldhúsi er bjart og skemmtilegt útskot til austurs með gólfsíðum gluggum.
Við hliðina á eldhúsinu er þvottahús og baðherbergi. Næst tekur við hjónaherbergi með baðherbergi inn af og þar við hliðina barnaherbergi og síðan aftur lyftan því eignin er skemmtilega skipulögð í hring með mjög góðu flæði. Út hjónaherbergi er gengið út á skjólgóðar og sólríkar suðursvalir með útsýni yfir borgina.
Þá fylgja lúxus penthouse íbúðinni tvö samliggjandi bílastæði, auðvitað á besta stað, alveg við innganginn í stigahúsið.
Einstaklega vegleg og tilkomumikil eign á besta stað í miðborginni. Örstutt er í verslanir, veitingastaði, leikhús, söfn og spennandi mannlíf og einnig fallegar gönguleiðir við sjóinn.
Það mun því ekki væsa um Birgittu í lúxus penthouse íbúðinni á meðan foreldrar hennar eru önnum kafnir við að byggja sér einbýlishús á Arnarnesi.