Þriðjudagur 15. október, 2024
5.7 C
Reykjavik

Bjarni hangir blóðrisa á nöglunum: „Svandís á þann leik að draga VG formlega út úr ríkisstjórninni

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Þetta yrði draumastaða fyrir Bjarna,“ segir Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðaherra, í samtali við Mannlíf um þá tillögu forsætisráðherra að ríkisstjórn hans sitji fram að kosningum eins og ekkert hafi í skorist. Össur segir að með þessu muni Sjálfstæðisflokkurinn ná að hluta til baka þeim kjósendum sem nú hafa snúið baki við honum. Þetta sé reyndar eina lífsvon hans sem formanns.

„Bjarnin hangir blóðrisa á nöglunum yfir þverhnýpinu. Hans eina von er að ríkisstjórnin haldi í þessari ,mynd og yhann geti farið sínum fram sem forsætisráðherra,“ segir Össur. Hann skrifaði pistil á Facebook í morgun þar sem hann lýsti því að Svandís Svavarsdóttir, formaðúr VG, geti stöðvað áform Bjarna og þannig bjargað sínum flokki og þá jafnframt komið höggi á Sjálfstæðisflokkinn.

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra.

„Það er algerlega á valdi Svandísar Svavarsdóttur, formanns VG, hvort Bjarni Benediktsson fær að halda áfram sem forsætisráðherra í þeirri illvígu kosningabaráttu sem nú fer í hönd. Sjálfur virðist hann ganga út frá því sem gefnu. En Svandís – og aðeins hún – á leiki í stöðunni sem geta fært henni frumkvæði í taflinu við Sjálfstæðisflokkinn,“ skrifar Össur.

Hann segir að fjölmiðlar virðist telja að ósk forsætisráðherra um þingrof feli sjálfkrafa í sér formleg stjórnarslit. Í kjölfarið verði svo starfsstjórn komið á laggir sem Bjarni leiði sem forsætisráðherra í gegnum kosningarnar. Þetta sé hins vegar allt annað en sjálfgefið. Það sé algerlega undir Svandísi komið.

Ríkisstjórn Íslands 2024 er í uppnámi.

„Ef VG gerir engan ágreining við áform Bjarna um að óska eftir þingrofi án þess að biðjast lausnar fyrir ríkisstjórn sína heldur hann því áfram sem forsætisráðherra gegnum kosningabaráttuna með öllu því forskoti sem þyngd embættisins veitir. Hann mun þá einsog allir aðrir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa fullt og óskorað vald í sínum málaflokkum. Vill Svandís það? Tæpast, því það er ekki í þágu hagsmuna VG. Svo vill til að hún á völ á öðru. Svandís á nefnilega þann leik að draga VG formlega út úr ríkisstjórninni, sem um leið tapar meirihluta sínum á Alþingi. Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar væri þarmeð fallin. Forseti Íslands verður þá að fara í viðræður við leiðtoga allra flokka og kanna hver þeim finnst best fallinn til að leiða starfsstjórn framyfir kosningarnar. Harla ólíklegt er að niðurstaðan verði sú að benda á Bjarna Benediktsson,“ skrifar Össur.

Pistill Össurar í heild sinni:
Svandís á leik í stöðunni
Það er algerlega á valdi Svandísar Svavarsdóttur, formanns VG, hvort Bjarni Benediktsson fær að halda áfram sem forsætisráðherra í þeirri illvígu kosningabaráttu sem nú fer í hönd. Sjálfur virðist hann ganga út frá því sem gefnu. En Svandís – og aðeins hún – á leiki í stöðunni sem geta fært henni frumkvæði í taflinu við Sjálfstæðisflokkinn. Þeir hafa þó hvergi komið fram í umfjöllun fjölmiðla.
Fjölmiðlar virðast þannig telja að ósk forsætisráðherra um þingrof feli sjálfkrafa í sér formleg stjórnarslit. Í kjölfarið verði svo starfsstjórn komið á laggir sem Bjarni leiði sem forsætisráðherra í gegnum kosningarnar. Þetta er hins vegar allt annað en sjálfgefið. Það er algerlega undir Svandísi komið.
Bjarni hefur nefnilega hvergi sagt, að hann hyggist biðjast lausnar fyrir ríkisstjórn sína. Aðeins, að hann muni óska eftir því við Höllu forseta að hún fallist á beiðni hans um þingrof. Þarmeð yrðu kosningar innan 45 daga. Ósk um þingrof er hins vegar ekki sjálfkrafa lausnarbeiðni fyrir ríkisstjórn. Það eru tveir formlega aðgreindir þættir. Ef engin lausnarbeiðni berst forsetanum verður engin starfsstjórn. Ríkisstjórnin heldur þá bara áfram í óbreyttu formi.
Hún yrði þarmeð ekki háð þeim takmörkunum sem gilda um starfsstjórnir. Þær fela m.a. í sér ákveðna friðarskyldu þar sem ráðherrar sinna einungis verkum sem þarf til að halda ríkinu gangandi uns ný stjórn með þingmeirihluta tekur við. Þeim er ekki ætlað að taka neinar ákvarðanir sem valdið geta ágreiningi.
Ef VG gerir engan ágreining við áform Bjarna um að óska eftir þingrofi án þess að biðjast lausnar fyrir ríkisstjórn sína heldur hann því áfram sem forsætisráðherra gegnum kosningabaráttuna með öllu því forskoti sem þyngd embættisins veitir. Hann mun þá einsog allir aðrir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa fullt og óskorað vald í sínum málaflokkum. Vill Svandís það? Tæpast, því það er ekki í þágu hagsmuna VG.
Svo vill til að hún á völ á öðru. Svandís á nefnilega þann leik að draga VG formlega út úr ríkisstjórninni, sem um leið tapar meirihluta sínum á Alþingi. Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar væri þarmeð fallin. Forseti Íslands verður þá að fara í viðræður við leiðtoga allra flokka og kanna hver þeim finnst best fallinn til að leiða starfsstjórn framyfir kosningarnar. Harla ólíklegt er að niðurstaðan verði sú að benda á Bjarna Benediktsson.
Við mat á þessu hlýtur Svandís einnig að horfa til þess að ríkisstjórn Íslands er ekki fjölskipað stjórnvald. Hafi forsætisráðherra ekki beðist formlega lausnar með bréfi til forseta fyrir ráðuneyti sitt geta ráðherrar tekið allar ákvarðanir sem þeir vilja, svo fremi þær eru innan ramma laganna. Í þeim vígaham sem birtist í yfirlýsingum nær allra ráðherra Sjálfstæðisflokksins gagnvart VG í gær, má taka sem gefnu að þeir muni kosta kapps um að skerpa stöðu sína og ásýnd með ýmsum ákvörðunum sem ganga þvert á stefnu VG, t.d. í málefnum innflytjenda og orkumálum. Vill Svandís gefa Sjálfstæðisflokknum þannig skotleyfi á VG beint ofan í kosningar?
Eftir það sem á undan er gengið, og eftir þau svipugöng niðurlægingar sem Bjarni og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins leiddu Svandísi í gegnum í atburðarrás gærdagsins, þá á Svandís því varla annan kost en draga VG formlega út úr ríkisstjórninni.
Geri hún það ekki verður það í annað skiptið, sem VG tryggir Bjarna í stól forsætisráðherra. Hvernig ætlar Svandís Svavarsdóttir að útskýra það fyrir þeim kjósendum á vinstri vængnum sem hún mun biðla til í nauðvörn næstu kosninga?
Önnur niðurstaða fæli í sér endanlega uppgjöf fyrir Sjálfstæðisflokknum. Hún yrði líklega grafskrift hennar sem formanns, og jafnvel VG sem flokks.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 
Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -