Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segist telja að „dómsmálaráðherra sé að gera hárrétt með því að taka sér þann tíma sem nauðsynlegur er til að bregðast við, þannig að það standist öll viðmið, þar á meðal lögbundin viðmið um afgreiðslu málsins.“
Þessi orð lét hann falla í samtali við mbl.
Leitað var eftir viðbrögðum Bjarna við bréfi ríkissaksóknara sem hann sendi dómsmálaráðherra á dögunum; þar var farið þess á leit að Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara yrði vikið tímabundið úr starfi vegna orða hans í opinberri umræðu:
„Á meðan málið er til meðferðar hjá dómsmálaráðherra ætla ég ekki að fara að leggja henni línur um afgreiðslu málsins,“ sagði forsætisráðherra.
Aðspurður um hvort það sé í lagi að víkja manni frá störfum sem hefur mátt þola hótanir, líkt og Helgi Magnús hefur mátt þola, segir Bjarni:
„Þetta er kjarni þess sem dómsmálaráðherra er að fást við. Ég ætla bara að segja að mér finnst það skipta öllu máli að þau skilaboð komi skýrt frá íslenska stjórnkerfinu að það verður ekki liðið að embættismönnum sé hótað eða ógnað með einhverjum hætti. Þau skilaboð þurfa alltaf að berast frá íslenska stjórnkerfinu. En þetta er að einhverju leyti mál sem varðar innbyrðis samskipti í embætti ríkissaksóknara og er nú til úrlausnar í dómsmálaráðuneytinu.“