Fimmtudagur 31. október, 2024
-0.3 C
Reykjavik

Björk um Vítalíu: „Hún hefur snúið hlutverkunum við – Hennar er nú valdið og þeirra er skömmin“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Mál málanna undanfarna viku hefur verið frásögn Vitaliu Lazareva af samskiptum sínum við nokkra áberandi, og þá, málsmetandi karla í þjóðfélaginu,“ skrifar Björk Eiðsdóttir, blaðamaður og umsjónarmaður helgarblaðs Fréttablaðsins, í leiðara blaðsins í dag.

Og bætir við:

„Ég játa að við fyrstu fréttir af viðtali Vitaliu við Eddu Falak í hlaðvarpinu Eigin konur velti ég fyrir mér tilganginum með því að opna sig um svo persónulega reynslu. En eftir að hafa gefið mér tíma til að hlusta á viðtalið í heild sinni og því frekar sem ég leiði hugann að hinni erfiðu frásögn, því sannfærðari verð ég um erindi hennar.

Ég, sem er komin yfir fertugt, verð reglulega að horfast í augu við þá staðreynd að þó að ég sé kona, femínisti og harður andstæðingur kúgandi áhrifa feðraveldisins, er ég líka afsprengi kynslóðarinnar sem ól mig upp og mótaði.“

Björk „ólst upp við að sumt tali maður ekki um, skömmina beri maður í hljóði og atburði eins og þá sem Vitalia upplifði sé bæði óþægilegt að tala um og hlýða á. Það reyndar er það: það er óþægilegt að heyra svona sögur. Það er óþægilegt að horfast í augu við að fólk sem við jafnvel berum virðingu fyrir hegði sér á þennan hátt. Það er óþægilegt að hugsa til fjölskyldna þessara manna og til þess að fjölmargar konur hafi upplifað sig í aðstæðum sem þeim leið illa í og kunnu ekki að koma sér út úr og burðuðust svo einar með afleiðingarnar.“

Heldur áfram

- Auglýsing -

„Hún fór sjálf úr fötunum og sjálf ofan í pottinn. Hún var í sambandi við giftan mann og tók þátt í feluleiknum í kringum samband sitt við hann. Hún var heldur ekki nægilega skýr þegar farið var yfir mörk hennar. Hjónadjöful kalla hana sumir og fleiri benda á að hún hefði mátt vita betur. Þeir sem hugsa á þennan hátt hafa ekki upplifað valdaójafnvægi á við það sem henni, rúmlega tvítugri og ástfanginni, var boðið upp á. Körlum á aldur við föður hennar var boðið upp á afnot af henni, af manninum sem hún elskaði og sannfærði hana um að ástin væri gagnkvæm.

Það er ofbeldi.

Þeir voru margir og þeir voru ríkir, þekktir, voldugir og einn þeirra taldi hún að væri framtíðarmaður sinn. Þeir misnotuðu aðstöðu sína og yfirburði en Vitalia hefur snúið hlutverkunum við. Hennar er nú valdið og yfirburðirnir og þeirra er skömmin. Viðsnúningurinn skiptir máli fyrir okkur öll, takk fyrir að taka slaginn.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -