- Auglýsing -
Björn Thoroddsen, flugstjóri og listflugmaður er látinn. Hann var 84 ára en hann lést 22. apríl síðastliðinn. Björn starfaði sem atvinnuflugmaður í áratugi.
Hann hóf störf árið 1962 hjá Loftleiðum en síðasta atvinnuflugið árið 2002 var á vegum Flugleiða. Vísir greinir frá þessu.
Eftir það sneri hann sér alfarið að listflugi. Þeir eru ekki fáir sem fóru með honum í útsýnis- og listflug frá Reykjavíkurflugvelli. Útför hans fór fram í kyrrþey.