- Auglýsing -
Á morgun þriðjudag kl. 11 býður Lindex í bleikt boð, en þá hefst forsala á bleiku línunni.
Línan er tileinkuð baráttunni við brjóstakrabbamein á Íslandi og rennur 10% af sölu hennar og allur ágóði af sölu armbandsins og bleika pokans til styrktar Krabbameinsfélags Íslands.
Léttar veitingar og bleikur gjafapoki fyrir fyrstu gestina.
Bleika línan verður aðeins til sölu í Lindex í Kringlunni og kemur í takmörkuðu upplagi.
Viðskiptavinir Lindex á Íslandi hafa stutt dyggilega við baráttuna gegn brjóstakrabbameini og frá upphafi hafa safnast rúmlega 18 milljónir í gegnum Lindex til Krabbameinsfélags Íslands.