Krabbameinsfélagið heldur bleika daginn ár hvert „þar sem landsmenn eru hvattir til þess að bera bleiku slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning og samstöðu.“
Í tilefni dagsins eru nokkur fyrirtæki sem bjóða uppá afslætti og mörg hver láta hluta uppsetts verðs renna til Krabbameinsfélagsins. Það er því um að gera að hafa þetta í huga ef þú þarft t.d. að taka bensín í dag en Orkan býður 18 króna afslátt og 2 krónur af hverjum lítra renna til Bleiku slaufunnar.
Þá býður íslenska hönnunar fyrirtækið As we grow 20% afslátt af bleikum vörum í október auk þess sem 5% af söluvirði rennur til Bleiku slaufunnar.
Bleiku slaufuna í ár hannaði Guðbjörg Ingvarsdóttir skartgripahönnuður í Aurum.
Fjölmörg fyrirtæki selja bleiku slaufuna svo er líka hægt að kaupa hana í vefverslun Krabbameinsfélagsins.
Á síðustu 50 árum hafa lífslíkur kvenna með krabbamein á Íslandi tvöfaldast og þar skiptir öflugt vísindastarf öllu máli. Á hverju ári greinast 800 konur með krabbamein og 300 konur látast úr sjúkdómunum. Með því að kaupa bleiku slaufuna styður þú við áframhaldandi vísindastarf.
Svo eru allir hvattir til að senda skemmtilegar, bleikar myndir af sér á netfangið [email protected] og verða þær birtar á facebooksíðu Bleiku slaufunnar. Merkið myndirnar #bleikaslaufan.