Það ríkir engin kreppa hjá Icelandair þar sem Bogi Nils Bogason, forstjóri á ofurlaunum, trónir á toppnum með rúmlega sjö milljónir króna í mánaðarlaun þegar allt er talið. Þetta er ekki síst merkilegt í því ljósi að félagið hækkaði launin hans um hátt í helming á krepputíma Covid. Icelandair á met í því að þiggja sóttarbætur frá íslenska ríkinu og létta þannig á starfsmannakostnaði. Laun forstjórans samsvara launum 18 lífeyrisþega. Félagið er í ímyndarvanda fyrir að hlaða undir forstjóra sinn og mjólka ríkið samtímis. Hluthafar úr hópi lífeyrissjóða eru ekki sáttur með það sem sumir kalla siðferðisbrest hjá þessu óskabarni þjóðarinnar …