- Auglýsing -
Í dag verður boðið upp á bólusetningu með bóluefninu Pfizer fyrir þá sem ekki hafa enn verið bólusettir. Laugardalshöll verður opin milli klukkan tíu og tvö. Þeir sem hafa fengið fyrri skammt af AstraZeneca en kjósa Pfizer sem seinni sprautu eru einnig velkomnir.
Um er að ræða síðasta opna daginn fyrir sumarfrí en bólusetningar hefjast aftur upp úr miðjum ágúst og þá með breyttu sniði.
Þeir sem kjósa að koma í dag geta komið í seinni sprautu þegar opnað verður aftur að nýju.
Á morgun er bólusett með bóluefni Moderna og AstraZeneca, en þar er fyrst og fremst verið að gefa seinni skammt bóluefnis.