Fram kemur í svari frá Bjarna Benediktssyni við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar að heildarkostnaður á framkvæmdum við Borgarlínu sé áætlaður 53 milljarðar króna; þar af yrði þá hlutur ríkissjóðs varðandi framkvæmdina 46,2 milljarðar.
Í skjalinu frá Bjarna er bent á að framangreind fjárhæð nær eingöngu utan um stofnkostnaðinn við framkvæmd samgönguverkefnisins, en að ekkert hafi verið ákveðið um framtíðarrekstrarfyrirkomulag.
„Ábati í þessu verkefni gæti t.d. verið fólginn í mögulegum beinum tekjum af farþegum Borgarlínunnar eða annarri umferð og af tímasparnaði og slysasparnaði í samgöngum samhliða lækkun kostnaðar vegna samdráttar í annarri umferð. Afvöxtun á framkvæmdaframlögum ríkissjóðs einum og sér fangar því ekki núvirði verkefnisins í heild heldur endurspeglar einungis hversu háa fjárhæð þyrfti að setja til hliðar í fjárfestingarsjóð með tiltekinni ávöxtun til að unnt væri að fjármagna hlutdeild ríkisins yfir allt tímabilið,“ segir í svari Bjarna.
Sigmundur Davíð spurði líka út í rekstrarkostnað Borgarlínunnar og annarra almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu og var að horfa til framtíðar. Bjarni segir í svari sínu að ekki hafi verið samið um aðkomu ríkisins að rekstri Borgarlínunnar.
Heimild: vb.is