Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri, og Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri, aðaleigendur Samherja, hafa afsalað sér hlutabréfaeign sinni í Samherja hf. til barna sinna. Börnin sex halda því á 84,5 prósenta hlut í fyrirtækinu. Mútumál Samherja tengt Namibíu er enn til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara, en hefur tafist vegna COVID-19 heimsfaraldursins.
Mannlíf skoðar hverjir sexmenningarnir eru sem halda nú um stjórnartaumana í einu stærsta og valdamesta fyrirtæki landsins. Samkvæmt heimildamanni Mannlífs sem þekkir til systkinanna eru þau öll jarðbundin og hörkudugleg í því sem þau hafa tekið sér fyrir hendur.
Katrín – Öflug afrekskona 10,375 % / 7,3-8,6 milljarðar kr.
Katrín Kristjánsdóttir er fædd 1991 og er líkt og eldri systir hennar fyrrum afrekskona á skíðum. Eftir grunnskóla tók hún eina önn á íþróttabraut VMA, en flutti síðan til Noregs þar sem hún fór í skíðamenntaskóla, auk þess að æfa og keppa á skíðum. Árið 2012, 21 árs gömul, lagði hún skíðaskóna á hilluna, á sama tíma og hún bar titilinn Íslandsmeistari í stórsvigi á Skíðamóti Íslands. Katrín átti einnig að baki keppnir í Evrópu- og heimsbikarmótum.
Árið 2013 byrjaði Katrín nám á listnámsbraut í Verkmenntaskólanum á Akureyri, þar sem hún tók áfanga í sjónlistum, fatahönnun og myndlistar- og menningarsögu.
Katrín hefur mikinn áhuga á útivist, en sumarið 2019 gengu hún og kærasti hennar um hálendi og strendur Íslands, alls um 350 km.
Katrín er nýbökuð móðir, en hún eignaðist frumburð sinn í byrjun árs.
Katrín keypti í 123,3 fm íbúð í fjölbýlishúsi í miðbæ Reykjavíkur, fyrir tæpum tveimur árum, þar sem hún býr með kærasta sínum og barni.
Sjá einnig: Afsal hlutabréfa í Samherja – Stærsta sumargjöf Íslandssögunnar
Sjá einnig: Börnin sem eignast Samherja – Baldvin erfðaprinsinn
Sjá einnig: Börnin sem eignast Samherja – Katla sjálfstæður sjúkranuddari
Sjá einnig: Börnin sem eignast Samherja – Dagný Linda afreksskíðakona um árabil
Sjá einnig: Börnin sem eignast Samherja – Halldór Örn bílstjórinn
Sjá einnig: Börnin sem eignast Samherja – Kristján Bjarni með tæknina á hreinu
Lestu úttektina í helgarblaðinu Mannlíf.