Fólk er í hættu innan bygginga þar sem burðarþol er ófullnægjandi, að mati Einars Þorsteinssonar borgarstjóra, og þess vegna hafi hann látið rýma leikskólann Brákarborg, og er gagnrýninn á framkvæmdina.
Einar var gestur Spursmála og þar var spurður út í málefni leikskólans er Reykjavíkurborg setti á fót; með kostnaði upp á heila 2,3 milljarða íslenskra króna.
Kemur fram að það var gert með uppkaupum á hrörlegu húsi er gert var upp. En í ljós kom að torfþak og mikið efnismagn er mokað var á þakið var .annig að veggir hússins standast eigi þunga þess.
Einar var spurður: Voru börnin á leikskólanum í hættu?
„Ég fékk upplýsingar um þetta í sumar og mitt viðbragð var að kalla alla heim úr sumarfríi því ég sá að ef burðarþol er ekki í lagi þá er fólk í hættu. Ég lít svo á. Það komu þarna tvær verkfræðiskýrslur sem sýndu að burðarþolið var ekki í lagi.“
Segist hann þrátt fyrir þetta svar ekki alveg geta fullyrt að börn eða starfsfólk hafi verið í einhverri hættu; hins vegar þurfi að líta til þess að byggingar sem þessar eigi að geta staðið af sér jarðskjálfta; niðurstöður sérfræðinga séu að bæta þurfi burðarþol hússins til þess að húsið teljist í eðlilegu og löglegu ástandi.
Einar er alls ekki hrifinn af því „að fara í svona aðgerð; að kaupa gamalt hús á háa fjárhæð og eyða svo miklum fjármunum í að gera það upp. Skólinn er fallegur núna en hann stenst því miður ekki þær kröfur sem við gerum til bygginganna,“ segir Einar.