Brynhildur Yrsa ein meðlima hópsins Öfga sagði í viðtali við Mannlíf í gær að hún ætlaði að láta flúra á sig setningu Ólafar Töru, sem hún lét falla eftir að ljóst var að hún var ein þeirra sem fékk bréf frá lögmanni Ingólfs Þórarinssonar, Ingós veðurguðs. Setningin var „Kærðu það sorpið þitt“.
Brynhildur Yrsa stóð við orð sín og skellti sér í flúr í dag og fékk sér ekki bara „Kærðu það sorpið þitt“ heldur lét hún flúra á sig merki hópsins Öfga.
Mannlíf spurði Brynhildi Yrsu hvernig henni liði nú þegar hún væri komin með þessi mögnuðu húðflúr á sig og hver hefði flúrað hana: „Ég er rosalega sátt. Ég fór á Dragonfly ink í Kringlunni og listamaðurinn heitir Javi. Ofboðslega vandvirkur og allra sársaukaminnsta flúrun sem ég hef ferið í“ svaraði Brynhildur Yrsa.