„Þessi dómsmálaráðherra tók við embætti fyrir ári síðan,“ ritar Brynjar Níelsson og vísar til myndar af Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra.
Heldur áfram:
„Pólitískir andstæðingar mótmæltu hástöfum þeirri skipun sem endaði með undirskriftasöfnun þegar hann réð sér aðstoðarmann. Ástæðan var sú að þetta væru ekki réttu mennirnar til að takast á við kynferðislegt ofbeldi og bæta réttarstöðu brotaþola.“
Brynjar mærir Jón:
„Það er nú samt þannig að í tíð þessa dómsmálaráðherra hefur verið gert meira í þessum málaflokkum en áður hefur þekkst; Þá lagði hann fram frumvarp á síðasta vorþingi um bætta réttastöðu brotaþola sem var samþykkt samhljóða. Þá hafa verið tekin stór skref í eflingu lögreglu, ákæruvalds og dómstóla í héraði til að auka hagkvæmni og skilvirkni í réttarkerfinu til hagsbóta fyrir alla.
Það þarf svona mann í borgarstjórastólinn.“
Segir:
„Þá værum við ekki föst í snjósköflum dögum saman eða í mygluðu húsnæði. Það dugar ekki að syngja sig út úr vandanum eins og meirihlutinn í borginni reynir gjarnan. Í hvert sinn sem þetta ágæta fólk fer í fjölmiðalviðtöl langar mann að hoppa ofan í bjútiboxið og loka á eftir sér.“