Langar raðir mynduðust fyrir utan matvöruverslanir í Ítalíu í morgun þar sem Ítalir bjuggu sig undir að loka sig af á heimilum sínum vegna útbreiðslu COVID-19. 463 hafa dáið vegna veirunnar þar í landi
Ítölsk stjórnvöld tilkynntu í gær að samkomubann hefur verið sett á og gildir það alls staðar á Ítalíu. Giuseppe Conte forsætisráðherra Ítalíu sagði að nú þyrfti fólk að halda sig heima.
Ítalir flykktust í matvöruverslanir í morgun til að kaupa nauðsynjavörur. Á vef BBC segir að andrúmsloftið hafi verið skrýtið þegar fólk verslaði nauðsynjavörur í morgun og að það hafi haldið sig í fjarlægð við aðra.
Fólki er gert að halda sig heima og má aðeins ferðast ef nauðsyn krefur, t.d. vegna heilsufarslegra ástæðna.
Sjá einnig: Samkomubann á allri Ítalíu vegna veirunnar