Íslenskir sósíalistar eru brjálaðir út í Guðjón S. Brjánsson, þingmann Samfylkingarinnar. Ástæðan er sú að hann er aksturkóngur Alþingis þar sem hann þáði rúmar 220 þúsund krónur á mánuði í aksturpeningar allt árið í fyrra.
Þau tíðindi urðu í fyrra að í fyrsta sinn í mörg ár keyrði Ásmundur Friðriksson ekki þingmanna mest. Hann datt niður í annað sætið á eftir Guðjóni. Á spjalli Sósíalistaflokksins á Facebook er hjólað í aksturkónginn og það er Katrín Baldursdóttir sem stofnar til umræðunnar:
„Aksturskóngur Alþingis árið 2020 er Guðjón S. Brjánsson þingmaður Samfylkingarinnar fyrir Norðvestur kjördæmi. Hann hefur fengið 222 þúsund krónur í aksturspeninga í hverjum einasta mánuði árið 2020. Samt veit maður varla hver hann er. Á vef Alþingis er hans getið aðeins fjórum sinnum undir atriðinu þingskjöl. Með fullri virðingu fyrir honum þá hlýtur maður að gera verulegar kröfur til afkasta hjá manni sem tekur 222 þúsund á hverjum einasta mánuði af skattfé okkar almennings til aksturs. Í raun og veru er þetta hneyksli. Þingmenn eru á mjög góðum launum. Við hljótum að gera kröfu til þess að þeir vinni af krafti og þannig að almenningur fái að vita um afköstin. Ég fylgist nokkuð vel með en mundi ekki þekkja Guðjón á götu,“ segir Katrín.