Tónlistargoðsögnin Bubbi Morthens segir að „Davíð þór jónsson er sennilega sá prestur seinni tíma sem þorir að taka hvað harðasta afstöðu með þeim minnstu og varnarlausu í samfélagi okkar á þannig máli að eftir sé tekið,“ segir hann og bætir við:

„Myndlíkingar hans eru snjallar og svíða þegar hann hirtir til ríkisstjórnina í máli hennar um að senda 300 flóttamenn á götuna í Grikklandi.“
Bubbi segir að undan orðum Davíðs Þórs svíði „svo sárt að biskup Íslands stígur fram ríkisstjórninni til varnar; að hún skuli ekki skilja að það var ekki verið að hóta, heldur miklu fremur verið að segja þeim sem málið varða að til sé sérstakur staður í helvíti fyrir þau sem níðast á varnalausum smælingjum; allavega fyrir þá sem eru trúaðir – fyrir hina er helvíti nú þegar í miklu stuði hér á jörðu.“

Hann bætir svo við að „biskup íslands mætti alveg taka hann sér til fyrirmyndar í staðinn fyrir að hóta honum fyrir það sem allir prestar ættu að gera; það er að þora að standa með þeim minnstu með logandi orðum og kærleika að vopni.“