Kóngurinn sjálfur, Bubbi Morthens, var stálheppinn að sleppa frá eldsprengingu sem varð þegar hann var að eiga við gas á dögunum. Hann var að fylla á brennara þegar sprakk með miklum látum og mikil eldsúla varð.
„Ég brann alveg sko, en þetta var ekkert alvarlegt,“ sagði Bubbi í samtali við Odd Ævar Gunnarsson á Fréttablaðinu en hann gerir lítið úr óhappinu þegar spurður hvort hann hafi slasast illa.
„Nei, nei, nei. Ég lenti í óhappi með gas. Ég var að fylla á brennara og það lak og það kom svona einhver eldsúla.“ segir Bubbi
Sögur hafa verið á kreiki að Bubbi hafi orðið illa úti í brunanum sem orðið hafi þegar hann var að grilla. „Þetta er bara eins og gengur og gerist. Auðvitað segir fólk þetta: Jú, jú. Bubbi Morthens, það kviknaði í honum. Ég var ekkert að grilla,“ segir Bubbi.