Búðarþjófar héldu lögreglunni við efnið í gærkvöld. Þeir stunduðu iðju sína víð aum höfuðborgarsvæðið og voru gjarnan staðnir að verki.
Þrír ökumenn voru stöðvaðir við akstur þar sem þeir voru að tala í farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað. Hver þeirra þarf að greiða 40 þúsund krónur í sekt.
Búðarþjófar voru staðnir að verki í þremur tilvikum í austurborginni. Í tveimur tilvikum játuðu menn og var þeim sleppt í framhaldinu. Kona nokkur sem uppvís varð að búðarþjófnaði reyndist ósamvinnuþýð. Hún var handtekin og flutt á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Tekin var skýrsla af henni og hún svo látin laus.
Fjórði búðarþjófnaðurinn kom upp í Múlahverfi. Það mál var afgreitt á vettvangi.
Tónlistarhávaði frá heimahúsi í Grafarvogi varð nágrönnum til ama. Lögreglan mætti á tröppur þess hávaðasama. Íbúinn lofaði að lækka í græjum sínum.
Brotist var inn í bifreið. Málið afgreitt á vettvangi