Maður var handtekinn í gærkvöld á Álftanesi, sakaður um að trufla störf lögreglunnar. Nokkur hópur fólks safnaðist saman við afleggjarann að Bessastöðum í þeim tilgangi að mótmæla tilkomu ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar. Lögreglan setti upp lokunarpóst og hleypti fólki ekki að Bessastöðum. Lögregla beitti að minnsta kosti þrá mótmælendur hörðu fyrir óhlýðni. Sá handtekni var látinn laus síðar um kvöldið. Vísir segir frá því að hluti mótmælenda hafi verið á vegum No Borderssamtakanna.
Lögreglan fékkst að öðru leyti við hefðbundin mál að mestu, samkvæmt Dagbók lögreglunnar. Nokkuð var um aðstoðarbeiðnir vegna veikinda og svo vegna fólks í annarlegu ástandi. Það tengdist þó ekki mótmælunum við Bessastaði.
Ökumaður var stöðvaður í austurborginni, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Dregið var úr honum blóð og hann látinn laus að lokinni sýnatöku
Þjófur var handtekinn og hann vistaður í fangageymslu, sakaður um innbrot og þjófnað.
Einn maður handtekin fyrir að fara ekki eftir fyrirmælum lögreglu. Sá var látinn laus að loknu viðtali
Tilkynnt um umferðarslys í Kópavogi. Ekki urðu slys á fólki
Tilkynnt um minniháttar eignarspjöll í Breiðholti. Skemmdarvargiur komst undan. Á svipuðum slóðum var tillkynnt um þjófnað úr verslun. Búðarþjófurinn yfirheyrður á vettvangi.