Tæknibilum hjá samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram hafði áhrif á fólk um allan heim í gær.
Þeir sem nota samfélagsmiðlana Facebook og Instagram urðu líklega varir við einhver vandamál á miðlunum í gær. Bilunun stóð yfir í um 14 klukkustundir en tæknifólki Facebook hefur tekist að laga bilunina er fram kemur í frétt BBC. Ekki hefur nákvæm skýring á vandamálinu borist frá Facebook.
Bilunin lýsti sér meðal annars þannig að notendur áttu í vandræðum með að senda og skoða skilaboð og deila færslum á Facebook og deila myndum á Instagram.
Notendur Facebook eru um 2,3 milljarðar núna. Þetta er í fyrsta sinn sem bilun af þessari stærðargráðu kemur upp síðan árið 2008 en þá voru notendur Facebook 150 milljón talsins.
Ýmsar kenningar fóru á flug þegar bilunin kom í ljós, meðal annars þess efnis að um að stóra netárás á Facebook hefði verið að ræða.
We're focused on working to resolve the issue as soon as possible, but can confirm that the issue is not related to a DDoS attack.
— Facebook (@Facebook) March 13, 2019