Alma Möller landlæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna ríkislögreglustjóra að hún dæmi ekki þá lækna og hjúkrunarfræðinga sem fóru erlendis í skíðaferð þrátt fyrir að hafa fengið beiðni frá heilbrigðisyfirvöldum um að fara ekki erlendis vegna útbreiðslu COVID-19.
Alma tók fram að um beiðni hefði verið að ræða, ekki tilskipun. „Það voru margir orðnir þyrstir í frí,“ sagði Alma og lagði áherslu á að hún dæmir ekki þá sem tóku ákvörðun um að fara erlendis á skíði. Hún segir fólk ekki hafa getað séð fyrir hversu hratt ástandið á áhættusvæðum breyttist.
„Við skulum ekki dæma mál sem við þekkjum ekki forsendur fyrir,“ sagði hún.
Hún bætti við að hún voni að fólk geti sýnt umburðarlyndi. „Einbeitum okkur að deginum í dag“.