Eins og Mannlíf greindi fyrst frá þá hefur Guðmundur Árni Stefánsson ákveðið að bjóða sig fram í fyrsta sætið hjá Samfylkingunni í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.
Guðmundur Árni sendi frá sér tilkynningu um málið og segir á einum stað þetta:
„Áður og fyrr stjórnuðu jafnaðarmenn í Hafnarfirði, þegar kraftur og framsýni í samstarfi við bæjarbúa var einkennandi. Fái ég stuðning flokksfélaga minna í prófkjörinu, þá stefni ég óhikað að því að Samfylking vinni góðan sigur í bæjarstjórnarkosningum í maí og tvöfaldi bæjarfulltrúatölu sína, þ.e. úr tveimur í fjóra. Og að afloknum kosningum geti Samfylkingin í góðu samstarfi við aðra flokka tekið við forystu um stjórn bæjarins.“
Óhætt er að segja að framboð Guðmundar Árna hafi vakið mikla athygli, enda einn reyndasti stjórnmálamaður Íslands; var bæjarstjóri Hafnarfjarðar, þingmaður og ráðherra; sendiherra víða um heim og svo mætti lengi telja.
Ótalmargir hafa sýnt Guðmundi Árna stuðning og hlýju og fagna framboði hans.
Þeirra á meðal eru flokkssystkini hans, borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, sem senda honum góða kveðju.
Fyrst Dagur – svo Ólína:
„Þetta þykja mér mikil tíðindi og góð. Velkominn heim segi ég nú bara! Og nánar tiltekið. Velkominn heim í slaginn! Þetta verður spennandi.“