Það lítur ekki út fyrir að nýr þjóðarleikvangur fyrir knattspyrnu hér á landi rísi á næstunni. Dagur B. Eggertsson hefur sagt að hann sé ekki klár í að taka þátt í fjármögnum á nýjum þjóðarleikvangi í knattspyrnu í Laugardal.
Reykjavíkurborg er eigandi Laugardalsvallar en áform um að breyta honum og bæta hafa í fjöldamörg ár verið á teikniborðinu; málið er í algerri biðstöðu. Talið er að slíkur leikvangur myndi aldrei kosta minna en fimmtán milljarða króna.
Völlurinn umræddi þykir ekki standa undir nútímakröfum um þjóðarleikvang; þykir sjúskaður, gamaldags og að hlaupabrautin eyðileggi alla stemmningu á leikjum landsliða karla og kvenna í fótbolta.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra var eitt sinn einn allra efnilegasti knattspyrnumaður Ísland – varnartröll mikið að burðum og lék með Stjörnunni – en skoski leikmaðurinn James Bett eyðilagði feril Bjarna með hræðilegri tæklingu á sínum; ökklabrotnaði Bjarni mjög illa og náði sér aldrei á strik eftir það og þurfti ungur að árum að leggja skóna á hilluna.
Bjarni hefur sagt að enginn botn sé kominn í samtal á milli ríkisins og Reykjavíkurborgar um nýjan þjóðarleikvang.
Þá hefur formaður KSÍ, Guðni Bergsson, sagt um mögulegan nýjan þjóðarleikvang, að málið sé alfarið á borði Reykjavíkurborgar.
Talsverð umræða hefur verið um málið á samfélagsmiðlum og mikið rætt um að slíkur leikvangur þurfi alls ekki að vera staðsettur í Reykjavík.
Maður að nafni Sæþór Jensson ritar til dæmis þetta um málið:
„Garðabær. Yrði flott fyrir nýjan völl,“ og segir að Reykjavíkurborg myndi missa miklar tekjur ef landsliðið (Laugardalsvöllur og KSÍ) færi burtu úr Reykjavík; að ef „KSÍ færi úr Reykjavík“ til Garðabæjar myndi sambandið borga skatta sína í Garðabæ.
Bjarni Benediktsson er borinn og barnfæddur Garðbæingur og myndi líkast til ekkert hafa á móti því að nýr þjóðarleikvangur yrði byggður í heimabæ sínum en um það hefur Bjarni hins vegar ekkert tjáð sig um.