Ekki er vitað hvað dró fyrirsætuna Kim Porter til dauða en hún lést á fimmtudaginn.
Fyrirsætan og leikkonan Kim Porter fannst látin á heimili sínu í Los Angeles í síðustu viku en dánarorsök eru enn ókunn. Porter er sögð hafa farið snemma að sofa og var slöpp eftir að hafa verið með „flensueinkenni“ í nokkrar vikur. Porter var 47 ára gömul. Samkvæmt fréttum vestanhafs er búið að útiloka að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti.
Í upplýsingum frá réttarmeinarfræðingi sem sá um krufningu á líki Porter kemur fram að ekki hefur enn fengist niðurstaða í allar rannsóknir sem gerðar voru sem gætu varpað ljósi á dánarorsök.
Ef marka má fréttir af vef TMZ mun Porter hafa verið með lungnabólgu þegar hún lést.
Sjá nánar: Diddy minnist barnsmóður sinnar á samfélagsmiðlum