Morgunblaðið heldur áfram að bera blak af ofbeldismönnum tengdum Donald Trump í dag. Segir í Staksteinum dagsins, sem ætla má að Davíð Oddsson ritstjóri skrifi, að það hlakki í vinstrimönnum á Íslandi vegna atburðanna í þinghúsinu í Washington.
„Íslenskir vinstrimenn fara nú sumir mikinn vegna atburða í þinghúsinu í Washington og reyna jafnvel að nýta þennan óskemmtilega atburð til að slá pólitískar vinsældakeilur. Þetta fólk hefur valið að gleyma því að í desember 2008 ruddist hópur óeirðaseggja af vinstri væng íslenskra stjórnmála inn í Alþingishúsið…“, skrifar Davíð. Hann lætur þess ógetið að Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi forseti Íslands, eða Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra höfðu ekkert að gera með mótmælin á Austurvelli sem er þvert á það að Trump æsti lýðinn til í Washington.
Í leiðara í gær sagði Davíð að Trump hefði sætt einelti og Joe Biden væri ófær um að sinna embætti forsetans og vafi léki á að hann gæti svarað spurningum upp á eigin spítur. Aðaleigandi Morgunblaðsins er Guðbjörg Matthíasasdóttir, umdeild athafnakona í Vestmannaeyjum. Davíð starfar í skjóli hennar …