Þrír menn voru í óða önn að stela dekkjum í Laugardalnum þegar lögregla var kölluð til. Þeim tókst að forða sér áður en laganna verði bar að garði og er málið óupplýst.
Í austurborginni bar það helst til tíðinda að ökumaður var stöðvaður í akstri, grunaður að vera undir annarlegum áhrifum. Hann var sviptur frelsi sínu og honum dregið blóð. Eftir að sýni hafði verið tekið fékk hann að fara út í nóttina, bíllaus. Fleiri ökumenn voru teknir vegna alksturs undir áhrifum áfengis eða lyfja.
Tilkynnt var um Minniháttar eignaspjöll á bifreið í miðborginni. Gerandi ókunnur
Maður var staðinn að verki við að brjóta rúður í Hafnarfirði. Rúðubrjóturinn var handtekinn og yfirheyrður. Hann var látinn laus að lokinni skýrslutöku
Kona í Breiðholti var svo óheppin að falla úr stiga. Atvikið varð í heimahúsi. Konan var flutt á bráðamóttöku til aðhlynningar og skoðunar.
Í gær voru verkefni lögreglunnar mörg og fjölbreytt. Krakki slasaðist á höfði eftir fall á skólalóð og var sendur til aðhlynningar.
Viðskiptavinur í miklu vímuástandi lheimsótti fyrirrtæki og lognaðist út af. Lögregla var kölluð til og tókst að koma manninum til meðvitundar og reka hann á brott.
Lögreglan greip inn í þar sem var ófriður á heimili og og leiðindi í húsráðendum. Þar tókst að koma á ró.