Djúp lægð skammt vestur af landinu stjórnar veðri. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings um veðrið næsta sólarhring. Þá er minnt á að í dag er alþjóðlegi veðurdagurinn.
Það er nokkuð hvöss suðvestanátt með skúra- eða éljahryðjum, en þurrt að kalla norðaustantil segir í hugleiðingunum. Hiti 0 til 5 stig. Seinni partinn fer að snjóa á Vestfjörðum og í kvöld má búast við suðvestan stormi norðan heiða.
Lægðin grynnist í nótt en hreyfist lítið. Næstu daga er útlit fyrir talsvert hægari suðvestanátt með éljum, en björtu veðri austanlands. Hiti kringum frostmark.