Einbeittur brotavilji einkenndi ferðalag ökumanns sem lögreglan gómaði glóðvolgan og vanhæfan í miðborginni. Hann reyndist vera undir áhrifum hugbreytandi efna og þar með ófær um að stjórna bifreiðinni án þess að valda háska. Þess utan var „ökutækið fullsetið“ eins og segir í skýrslu lögreglunnar. Tveir farþegar reyndust vera í skotti bifreiðarinnar. Ökumaðurinn reyndist í þokkabót vera próflaus.
Fleiri einstaklingar náðu ekki að skilja á milli ölvunar og aksturs. Einn var stöðvaður í austurborginni og reyndist vera undir áhrifum áfengis. Hann var handtekinn og tekið úr honum lífssýni. Þá var annar handtekinn fyrir sömu sakir um svipað leyti.
Tilkynnt var um líkamsárás í nótt. Málið er til rannsóknar. Þá var lögreglunni tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir og skemmdarverk í Háaleitishverfi.
Tilkynnt um innbrot á svæði Hafnarfjarðarlögreglunnar í nótt. Óljóst með árangur rannsóknar eða hvort lögregla er á spori þjófanna.
Tilkynnt var um ofsaakstur við Smáralind. Óljóst hvort ökuníðingurinn náðist.
Það sem einkenndi liðna nótt hjá lögreglunni voru brotlegir ökumenn og fularfullarmannaferðir tengdar innbrotum og skemmdarverkum.