Lögreglan þurfti að hafa afskipti af nokkrum einstaklingum í nótt sem ýmist áttu í átökum eða sýndu afbrigðilega hegðun eða voru illa drukknir.
Um kvöldmatarleytið barst tilkynning um innbrot í hesthús á svæði Hafnarfjarðarlögreglu. Óljóst er hver tilgangurinn var. Um svipað leyti var æstur maður á ferð í miðborginni. Lögreglan greip í tómt og hafði sá æsti haft sig á brott.
Bargestur varð fyrir því óláni að farsíma hans var stolið. Þjófurinn komst á brott en vitað er hver hann er. Lögreglan leitar hans.
Ökumaður stöðvaður í austurborginni vegna gruns um ölvunarakstur. Tekið var úr honum lífssýni og hann látinn laus.
Dópaður ökumaður var stöðvaður í Kópavogi. Hann reyndist vera á stolinni bifreið . Maðurinn var umsvifalaust handtekinn og læstur inn í fangaklefa. Hann verður yfirheyrður með nýjum degi og látinn svara fyrir ógöngur sínar.
Annar ökumaður var stöðvaður í Kópavogi vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var látinn laus eftir að dregið var úr honum blóð.