Ökumaður bifreiðar skapaði stórhættu í miðborginni þegar hann ók á miklum hraða um íbúðagötur og sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. Lögreglan veitti ökumanninum eftirför. Hann braut nokkur umferðarlög á flóttanum áður en náðist að stöðva hann og aflétta hættuástandinu. Ökufanturinn reyndist vera ölvaður og að auki undir áhrifum fíkniefna. Hann var læstur inni í fangaklefa þar sem hann mætur nýjum degi. Mál hans er til rannsóknar.
Þjófur lér greiðar sópa í matvöruverslun í austurborginni. Hann var gripinn við iðpju sína og framseldur lögreglu. Mál hans var afgreitt á vettvangi.
Ökumaður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis. Honum var dregið blóð og honum síðan hleypt út í nóttina.
Tilkynnt var um líkamsárás í miðborginni. Óljóst er með stöðu þess máls. .
Lögreglu barst tilkynning um mann sem lagði land undir fót og ætlaði sér í bjartsýni sinni að ganga frá Reykjanesbraut, til móts við álverið, og á Keflavíkurflugvöll. Reikna má með að ekki taki undir fimm klukkustundum að ganga umrædda leið. Rætt var við bjartsýnismanninn og honum veitt aðstoð til að komast á áfangastað.
Ökumaður bifreiðar handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Ökumaður reyndist einnig sviptur ökuréttindum. Laus eftir að blóðs´þynui var tekið.
Fjórir ökumenn voru sektaðir fyrir hraðakstur.
Umferðarslys varð í hverfi 112. Minniháttar slys á fólki.