Sá heppni einstaklingur sem hlýtur titilinn afmælisbarn dagsins í dag er enginn annar en Guðfinnur Sölvi Karlsson eða Finni í Dr. Spock eins og hann er kallaður. Finni er fæddur nákvæmlega á þessum degi fyrir 48 árum síðan.
Finni hefur í gegnum árin verið nokkuð duglegur í veitingabransanum en hann rekur Prikið, Hressingaskálann og Iðnó um þessar mundir og mögulega fleiri staði. Þá er hann annar tveggja söngvara hinnar goðsagnakenndu rokksveitar Dr. Spock.
Mannlíf heyrði í Finna hljóðið og vildi vita hvort og þá hvernig hann ætlaði að halda upp á daginn. „Heyrðu, Dr. Spock er með tónleika í tilefni dagsins á Lemmy í kvöld! Við ætlum að rokka aðeins og svona, Covid í burtu þannig að það á aðeins að taka á því. Frítt inn og bara gleyma sér aðeins. Þetta verður gaman, aðeins að gleyma sér, fá sér og hafa gaman.“
Mannlíf óskar Finna innilega til hamingju með afmælið!