Rauðalækur 52 er falleg, vel skipulögð íbúð í grónu og vinsælu hverfi í Reykjavík. Íbúðin er fjögurra herbergja með tveimur stofum sem skapa skemmtilegt rými.
Eldhúsið vekur þó mesta athygli en má segja að það sé draumur allra sem eyða miklum tíma í eldhúsinu. Hlýlegur tónn innréttinga passa vel með arkitektúr hússins en er húsið byggt árið 1957.
Hefur LIND fasteignasala þessa skemmtilegu íbúð á skrá hjá sér.
Íbúðin hefur sérinngang sem hentar hunda- og kattaeigendum vel. Þríbýlið deilir sameiginlegri lóð og bílastæðum. Þá standa yfir framkvæmdir á þaki sem er verið að taka í gegn.
Allar frekari upplýsingar má finna á vef fasteignasölunnar.