Kona gerðist fingralöng í verslun í miðborginni. Hún hljóp út úr verslun með vörur án þess að greiða fyrir þær. Árvökulir lögreglumenn, sem voru að sinna öðru máli skammt frá versluninni, sáu starfsmann veita konunni sem var á harðahlaupum eftirför. Lögreglumennirnir náðu að stöðva þjófinn. Konan, sem var mjög ölvuð, vildi ekki gefa upp persónuupplýsingar og lagði á flótta undan lögreglu. Hún var þá handtekin og færð á lögreglustöð þar sem bráði af henni og hún gaf persónuupplýsingar. Henni var sleppt í framhaldinu og vörunum var skilað aftur í verslunina.
Á öðrum stað og öðrum tíma var maður handtekinn fyrir veggjakrot og vörslu fíkniefna. Maðurinn hafði krotað á nýbyggingu Alþingis. Þegar lögregla hugðist hafa tal af manninum reyndi hann flótta undan lögreglu en náðist eftir stutta eftirför. Við leit á manninum fundust kannabisefni. Hann var fluttur á lögreglustöð til skýrslutöku og segir ekki meira af honum.
Ökumaður var kærður fyrir að aka á nagladekkjum. Málið var afgreitt með vettvangsskýrslu. Hann mun þurfa að greiða háa sekt.
Tilkynnt var um hugsanlega fíkniefnasölu úr bifreið í Kópavogi. Maður sem sat í bifreiðinni var handtekinn vegna brots á lögum um útlendinga, en hann hafði dvalið of lengi inni á Schengen svæðinu.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna ofurölvi manns í verslunarmiðstöð. Maðurinn gisti í fangageymslu lögreglu þangað til ástand hans batnaði.