Almenn reiði er vegna grófra ummæla Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins, í garð Vigdísar Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, í teiti sem var haldið eftir þing Bændasamtakanna. Sigurður Ingi nefndi Vigdísi þá svörtu þegar til stóð að mynda hópinn með fram. Heimildir eru fyrir því að þetta hafi verið fyllerísraus í formanninum sem hafi verið orðinn nokkuð framlágur þegar rasisminn braust fram. Sumir á meðal gróinna Framsóknarmanna telja að best væri að taka afsökunarbeiðni hans og vona að hann taki á sínum málum. Samkvæmið hafi raunar einkennst af mikilli og lítt heftri drykkju og minnt meira á sveitaball um miðja nótt en siðaðra manna samkomu. Sigurður Ingi er enn ekki búinn að súpa seyðið af ummælunum sem margir telja vera í ætt við frægt drykkjuraus foringja Miðflokksins á Klausturbarnum forðum …