Þegar lögregla ætlaði að hafa afskipti af manni í miðborginni hljóp hann á brott. Hann var hins vegar eltur uppi af fótfráum lögreglumanni. Við öryggisleit þá fundust fíkniefni á aðilanum og talsvert magn af reiðufé. Hann er grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna. Þá kom í ljós að meintur dópsali, sem er erlendur ríkisborgari, var ekki með skilríki meðferðis og gat ekki gert grein fyrir dvöl sinni. Hann var handtekinn og læstur inni í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Þrír ökumenn voru kærðir fyrir að aka gegn rauðu ljósi. Málin afgreidd á vettvangi og þeim gert að greiða sekt sem nemur allt að 40 þúsund krónum.
Hópur af ungmennum var með læti í strætisvagni og lögregla kölluð til. Allir rólegir þegar lögregla kom á vettvang og ungmennin héldu sína leið.
Annar hópur ungmenna var að sprengja flugelda í verslunarmiðstöð í Breiðholti. Engar skemmdir og allir farnir af vettvangi þegar lögregla kom á staðinn.
Eldur varð laus á svölum í fjölbýlishúsi á Grafarholti. Eldurinn var töluverður en fljótlega slökktur af slökkviliði. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá flugeldum sem var skotið inn á svalirnar. Á sömu slóðum urðu minniháttar skemmdir á bifreiðum eftir sprengingar. Málið er í rannsókn.
Tilkynnt um eignaspjöll á gróðurhúsi í Mosfellsdal. Málið í rannsókn.