„Hestamenn í Borgarnesi eru allir lamaðir yfir þessu. Allir bíða eftir að skepnunum sé komið í betri aðstæður. Fleiri fleiri manns hafa látið vita,“ segir Steinunn Árnadóttir er organisti í Borgarneskirkjuí samtali við Vísi. Fólk óttist hins vegar þann sem haldi hrossinn og því þori enginn að segja neitt.
Steinunn segir nærsveitunga sína lamaða vegna illrar meðferðar á hestum í nærsveitinni. Hún er ósátt við yfirvöld að grípa ekki inn í þrátt fyrir endurteknar ábendingar. Dýralæknir hrossasjúkdóma hjá MAST segir málið í ferli hjá stofnuninni.
Hún deildi mynd af hrossi sem virðist vannært á Facebook-síðu sinni í dag of létu viðbrögðin lekki á sér standa. Fólk virðist vera í miklu áfalli yfir þessu dýraníði og hafa margir deilt færslu hennar. Fólk áttar sig ekki á því hvers vegna ekki sé gripið inn í.
Á mynd með færslunni sést að hestarnir fá ekki mikla næringu. Steinunn segir að í rauninni sjáist hestarnir sjaldan úti. Þeim sé haldið inni í alltof litlu hesthúsi, líklega 17-18 saman. Hesthúsið ætti þó varla að rúma nema tíu hross að mati Steinunnar.
Hún er óviss um fjöldann vegna þess að hana grunar að eitt hrossið sé dautt.
Í samtali við Mannlíf segir Steinunn að hún voni að með því að vekja athygli á þessu verði eitthvað gert:
„því meira því betra, ekkert annað virðist gera gagn, við erum búin að tilkynna þetta endalaust í allt sumar og fullt af öðru fólki búið að hringja í 112 og biðja um aðstoð. En ekkert gerist, endalaus frestur og „málið er í ferli” hjá MAST.