Lögreglan hafði í nógu að snúast í gærkvöld og nótt vegna drukkinna ökumanna víða um höfuðborgarsvæðið. Allir sem um ræddi voru teknir í sýnatöku og þeim síðan sleppt bíllausum út í nóttina. Við leit á einum þeirra fundust ætluð fíkniefni, sem voru haldlögð. Annar mældist vera mjög ölvaður. Öndunarpróf í áfengismæli sýndi niðurstöðuna 2,44‰ sem er mjög hátt. Sá var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.
Kallað var eftir aðstoð vegna líkamsárásar í miðborginni. Dyravörður á skemmtistað er grunaður um að hafa gengið of langt og beitt gest staðarins ofbeldi. Á öðrum skemmtistað í grenndinni er maður grunaður um að hafa brotið rúðu.
Óskað aðstoðar vegna innbrots í grunnskóla í hverfi 210. Einn var handtekinn á vettvangi. Við leit á manninum fannst síðan talsvert magn af ætluðu amfetamíni. Innbrotsþjófurinn var læstur inni í fangaklefa og býður þar yfirheyrslu með morgninum.
Óskað aðstoðar vegna líkamsárásar í hverfi 200. Þar hafði maður slegið annan í höfuðið með glasi. Ofbeldismaðurinn var handtekinn og fangelsaður.