Nú á dögunum kannaði verðlagseftirlit ASÍ verð á lausasölulyfjum og ýmsum öðrum vörum sem seldar eru í apótekum.
Samkvæmt vef ASÍ var verð kannað í öllum apótekum landsins eða 26 útibúum. Eitt apótekið neitaði hinsvegar þátttöku í könnuninni og var það Borgarapótek í Borgartúni.
Costco oftast með lægsta verðið
Af þeim 149 vörum sem könnunin náði til, var Costco með lægsta verðið á 53 þeirra. Rimaapótek kom næst á eftir Costco, en í 11 tilvikum voru vörur lægstar í verði þar.
Lyfjabúrið var oftast með hæsta verðið, en 39 vörur voru dýrastar þar og var í 33 tilvikum verðið hæst í Lyfju.
Samkvæmt könnun ASÍ var algengast að munur á hæsta og lægsta verði væri á bilinu 40-60%.
Einnig kemur fram að Verðlagseftirlit ASÍ hvetur neytendur til að spyrja um samheitalyf, sem gætu verið á hagstæðara verði og athuga með afsláttakjör.
Verðmunur á ákveðnum vörum
Samkvæmt könnun ASÍ var í mörgum tilfellum mikill munur á hæsta og lægsta verði á algengum lausasölulyfjum. Ofnæmistöflurnar Kestine (20 mg) eru teknar sem dæmi, en 40% eða 4277 króna verðmunur var á 100 stykkjum. Lægst var verðið í Austurbæjarapóteki, 10.673 kr. en hæst 14.900 kr. hjá Apótekinu Mos.
Einnig var mikill munur var á hæsta og lægsta verði á til dæmis bætiefnum, vítamínum, sjampói og snyrtivörum.
Hið vinsæla fæðubótarefni, Benecta var ódýrast í Costco á 4.783 krónur og dýrast í Lyfsalanum Glæsibæ, en þar kostar það 6.360 krónur.
Einnig var nokkur munur á verðlagi á Nutrilenk Gold (180 töflur), en 2.573 króna munur var á hæsta og lægsta verði.