„Mín mesta sorg var þegar faðir minn lést. Ég var svo ungur og það bar svo brátt að,“ segir Guðmundur Franklín Jónsson forsetaframbjóðandi um mestu sorgarstund ævinnar. Í barnaskóla stóð hann fyrir flöskutombólum og bauð vinum sínum reglulega upp á pylsu og kók fyrir ágóðann. Átta ára gamall byrjaði Guðmundur að vinna sér inn fyrir kaupi og hugurinn stefndi fljótt á verðbréfasölu á Wall Street.
Lengi átti hann erfitt með að búa á Íslandi en með aldrinum hefur hann lært að meta það smáa. Guðmundur segir Guðna Th. ágætan en vill sjálfur verða betri forseti landsins með málskotsréttinn að vopni.
Guðmundur Franklín athafnamaður segir spillingu ríkja á Íslandi og boðar breytingar verði hann forseti. Í viðtali við Mannlíf segir hann frá pöddusöfnun í æsku, skemmtilegum samskiptum við Björgólf Thor og erfiðu gjaldþroti. Hann viðurkennir að honum hætti til að taka „örlítið sterkt til orða“.
Lestu viðtal við verðbréfasalann sem vill verða forseti í Mannlífi sem kom út í dag.