Egill Helgason segir að búið sé að gjaldfella dóma um bækur með því að gefa alltof mörgum bókum of margar stjörnur í einkunnagjöf.
„Aldrei nokkurn tímann hefur verið viðlíka stjörnuflóð og nú um jólin. Byrjendabækur fá fimm stjörnur – sem í mínum huga er meistaraverk eða jafnvel snilldarverk.“
Egill segir að „skalinn er reyndar orðinn mjög þröngur, hann spannar ekki nema svona eina og hálfa stjörnu, frá þremur og hálfri upp í fimm. Neðar er varla farið. Þykir raunar afleitt og áfall að fá þrjár og hálfa stjörnu.“
Hann segir að endingu:
„Ekki hægt að nota það í auglýsingu. Meðaltalið er fjórar til fjórar og hálf stjarna. Gefur auga leið að þar með er þetta orðið nánast merkingarlaust.“