Þáttastjórnandinn Egill Helgason segir að það sé „alveg fáránlegt að í fréttum helgarinnar var talað um Covid-lok – en það er auðvitað það sem fólk langar að heyra, skiljanlega.“
Egill nefnir að „þjóðir í Evrópu hafa á sér mikinn vara vegna Delta-afbrigðisins“ svokallaða og að „jafnvel sé rætt um að loka á breska ferðamenn.“
Hann er áhyggjufullur því „nú greinast fimm smit hjá einstaklingum sem eru búnir að fara víða og taka ber fram að nokkur hluti þjóðarinnar er ekki bólusettur; margir eiga eftir að fá seinni skammt og einnig er nokkuð í að bóluefnin nái fullri virkni hjá stórum hópi fólks.“
Agli er tíðrætt um Delta-afbrigðið sem hann segir að sé „skæðara en fyrri afbrigði – það smitast miklu meir; jafnvel við minnstu samskipti, og fólk verður veikara.“
Það er enginn svartsýnistónn í Agli þótt hann sé áhyggjufullur. Hann telur hins vegar of snemmt sé að fagna fullnaðarsigri í baráttunni við hinn skæða heimsfarald sem tekið hefur að minnsta kosti fjórar milljónir mannslífa á heimsvísu.
Egill er einfaldlega á þeirri skoðun að „við þurfum enn að fara varlega“ og að þessum hræðilega heimsfaraldri sé ekki endanlega lokið.