Borgarstjórn hefur enga burði til að stöðva framkvæmdir við grænu vöruskemmuna við Álfabakka sem reis við hlið fjölbýlishúss Búseta. Skemman lokar algjörlega fyrir útsýni frá sumum íbúðanna og hefur verið nefn „Græna hrollvekjan“ af sumum þolenda.
Einar Þorsteinsson borgarstjóri hefur sagt að hann vilji láta rífa vöruskemmuna að hluta. Í gær kom fram í máli hans að ekki væri mögulegt að hrófla við framkvæmdinni. Samþykkt var í borgarstjórn í gær að ráðast í úttekt á stjórnsýslu borgarinnar í tengslum við umdeilt vöruhús í Álfabakka.
Einar gagnrýndi stjórnkerfið í ræðu sinni í borgarstjórn í gær og sagði að íbúar sem gerðu athugasemdir við byggingaráformin 2022 hefðu fengið villandi svör. Meðal þeirra sem fordæma byggingu skemmunnar og hlut meirihlutans í málinu er Hildur Björnsdóttir, leiðtogi Sjálfstæðisflokksins. Hún hefur þó verið með í ráðum frá upphafi og engu andmælt, eins og kom fram í umfjöllun Mannlífs.
Á fundi borgarstjórnar í gær var rætt hvort stöðva ætti framkvæmdir við Álfabakka. Borgarstjóri studdi ekki tillögu um verkstöðvun en samþykkt að innri endurskoðun borgarinnar fari yfir málið í heild sinni.
„Ég skil vel að íbúar hafi sterkar skoðanir á þessu húsi, en það getur verið mjög snúið að flytja svo stórt mannvirki eitthvert annað. Ég vona að það verði hægt að gera breytingar á húsinu þannig að það verði skaplegt að búa þarna,“ hefur Morgunblaðið eftir Einari Þorsteinssyni.
Búseti, eigandi fjölbýlishússins, hefur reynt síðan í nóvember að stöðva framkvæmdir við vöruskemmuna en ekkert gengur í þeim efnum og framkvæmdin heldur áfram.
Málinu hefur verið líkt við Braggamálið svokallaða. Einar borgarstjóri er í miklum vanda vegna málsins og áríðandi fyrir hann og Framsóknarflokkinn að finna lausn.