Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Rauðás Hugbúnaður ehf. er heldur betur að gera það gott; fyrirtækið hagnaðist um 356 milljónir króna í fyrra, en árið 2019 var hagnaðurinn 280 milljónum króna.
Starfsemi fyrirtækisins snýst fyrst og síðast um rekstur leikjasíðunnar CardGames.io; vefsíðu með einföldu viðmóti þar sem notendum gefst kostur á að spila ýmsu klassíska leiki sem spilaðir eru á borðspil, sem og hefðbundin 52 spil. Til dæmis veiðimann, skítakall, kapal, skák, sudoku og yatzee.
Einar Þór Egilsson er eigandi Rauðás Hugbúnaðar, en hann er tölvunarfræðingur, og við munum án vafa heyra meira frá honum í framtíðinni, því hann er svo sannarlega að gera góða hluti og ekkert lát virðist vera á gróðanum.