Laugardagur 16. nóvember, 2024
-0.6 C
Reykjavik

Einkaviðtal við eiganda Farvel ferðaskrifstofunnar: „Ég hef ekkert óhreint í pokahorninu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Viktor Heiðdal Sveinsson, eigandi ferðaskrifstofunnar Farvel, óttast ekki niðurstöðu lögreglurannsóknar sem boðuð hefur verið af yfirvöldum. Hann segist ekki hafa gert neitt rangt og er sannfærður um að sú verði niðurstaða rannsóknarinnar.

Lögregla rannsakar hvort saknæmt athæfi hafi átt sér stað við gjaldþrot ferðaskrifstofunnar. Fjöldi íslenskra ferðalanga er sagður hafa tapað háum fjárhæðum við þrotið þar sem flestir þeirra höfðu millifært inn á reikning fyrirtækisins. Dæmi séu um að fjölskyldur hafi tapað um þremur milljónum króna eftir að hafa greitt inn á ferð sem aldrei var farin.

Ég fagna því að þetta sé rannsakað og á ekki von á neinu slæmu úr því.

Líkt og Mannlíf greindi frá urðu 20 ferðalangar á vegum ferðaskrifstofunnar Farvel strandaglópar í Thailandi eftir að ferðaskrifstofuleyfi stofunnar var fellt niður í desember. „Þetta er svakalegt rugl,“ sagði fjölskyldufaðir sem staddur var í Thailandi. Hann og fjölskylda hans, fjögur samtalas, greiddu 1.340.000 krónur fyrir ferðina með flugi og hóteli í þrjár vikur. Í janúar greindi Mannlíf svo frá því að Ferðamálastofa hafi vísað máli Farvel til lögreglu. 

Viktor bendir á að engin niðurstaða liggi fyrir hjá lögreglu um saknæmt athæfi og óttast hann aðspurður alls ekki að svo verði. „Nei nei, alls ekki. Ég bara fagna því að þetta sé rannsakað. Það er ekkert óhreint mjög í pokahorninu þarna,“ segir Viktor í samtali við Mannlíf.

Eigandi Farvel segist í raun lítið vita um málið annað en það sem komið hefur fram í umfjöllun fjölmiðla. Hann segir að hvorki Ferðamálastofa né lögreglan hafi leitað til sín vegna boðaðrar rannsóknar. „Mér hefur ekkert borist um þetta og ég veit eiginlega ekki hvaðan þetta er upprunið. Ferðamálastofa hefur legið undir miklum ámæli vegna málsins og ég tel þetta vera eðileg varnarviðbröð hjá þeim að fara þessa leið. Ég fagna því að þetta sé rannsakað og á ekki von á neinu slæmu úr því.“

Ferðaskrifstan Farvel

Óskað hefur verið formlega eftir því að Umboðsmaður Alþingis skoði hvort Ferðamálastofa hafi sýnt óvenju mikla linkind gagnvart Farvel ferðaskrifstofunni. Fall ferðaskrifstofunnar varð til þess að fjöldi fólks tapaði háum fjárhæðum þar sem tryggingarféð var langt í frá nægjanlegt. Gerðar voru 76 kröfur um endurgreiðslur úr tryggingarstjóði Ferðamálastofu og var algengast að fók hafi fengið um 10 prósent endurgreitt af því sem það hafði millifært til ferðaskrifstofunnar. Starfsleyfi stofunnar var afturkallað 18. desember síðarliðinn og hún svo úrskurðuð gjaldþrota í lok apríl.

- Auglýsing -

Aðspurður þá ítrekar Viktor að hann líti svo á að hann hafi ekki gert neitt rangt í rekstrinum. „Jú, það er auðvitað í því ljósi sem ég fagna rannsókninni,“ segir Viktor.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -