- Auglýsing -
ORÐRÓMUR Pétur Einarsson, fyrrverandi flugmálastjóri og hótelstjóri, hefur undanfarið glímt við krabbamein sem er að mati lækna ólæknandi.
Pétur lætur ekki deigan síga þrátt fyrir þjáningar sínar. Hann stofnaði Facebook-síðuna Dagbók krabbameinssjúklings þar sem hann lýsir af einlægni baráttu sinni.
Hann sagði meðal annars frá því þegar hann og sambýliskona hans, Svanfríður Ingvadóttir, gengu í hjónband í apríl. Pétur útskýrði þetta þannig að hann vildi að hún yrði ekkja en ekki fyrrverandi ástkona.