Faraldur kórónaveiru (2019-nCoV) breiðist hratt út en enn sem komið er hafa langflest tilfellin greinst í Kína. Enginn einstaklingur hefur enn sem komið er greinst smitaður af kórónaveirunni 2019-nCoV á Íslandi en forstjóri heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu segir einn og einn rugla flensu við kórónaveirusýkingu.
Á vef Embættis Landlæknis er gerð tilraun til að svara þeim spurningum sem kunna að vakna um þessa nýju kórónaveiru, m.a. spurningunni um hvort hægt sé að ruglast á kórónaveirusýkingu og inflúensu.
Í svari segir að einkenni kórónaveirusýkingu líkjast helst inflúensusýkingu í fyrstu þegar hósti, hiti, bein- og vöðvaverkir, þreyta gerir vart við sig.
Almannavarnir ráðleggja fólki að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar ef grunur kviknar um kórónaveirusmit nema að fengnum ráðleggingum í síma.
Eitt og eitt símtal
Aðspurður hvort margt fólk sé að hringja á heilsugæslur á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um kórónaveirusmit þegar um flensu er að ræða segir Óskar Reykdalsson, forstjóri heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu, að eitt og eitt slíkt símtal sé að berast.
„Það er mjög lítið um það. Þetta er ein og ein fyrirspurn og ekkert áhyggjuefni. Það sem er einkennandi fyrir þessa veiki að það er eiginlega ekki hægt að fá hana nema að hafa verið að koma frá þessum héröðum í Kína þar sem flest tilfellin hafa verið að greinast,“ segir Óskar.
„Þetta er ein og ein fyrirspurn og ekkert áhyggjuefni.“
Hann tekur fram að hefðbundin inflúensa getur jafnvel valdið sjúklingi meiri vanlíðan fyrst um sinn heldur en kórónaveirusýking. „Fólk verður yfirleitt veikari af inflúensu fyrstu dagana heldur en af kórónaveirunni. Svo er talað um að fimmti hver einstaklingur sem smitist af kórónaveiru finni fyrir alvarlegum einkennum eftir nokkurra daga veikindi og er það oft á 5. – 7. degi. Svo er mikilvægast af öllu að veiran smitast mest með snertismiti og handþvottur og spritt er þá mjög gagnlegt til forvarna.“
Mikilvægt að hringja fyrst
Óskar tekur fram að nokkur sýni hafa verið tekin af sjúklingum á Íslandi en þeir ekki reynst hafa verið veikir af kórónaveiru.
„Staðan er óbreytt og engin hefur greinst á Íslandi enn sem komið er. Allar heilsugæslustöðvarnar eru tilbúnar að taka við þessum sjúklingum eins og öllum öðrum en við viljum að fólk sem telur sig mögulega smitað af kórónaveiru hringi í sína heilsugæslu eða í síma 1700 í stað þessa að mæta á heilsugæslustöðina. Það er liður í að koma í veg fyrir mögulega útbreiðslu.“